Vínskólinn ehf.
Marta Maté Masterclass
Marta Maté Masterclass
Couldn't load pickup availability
Fimmtudaginn 24. Október mun César Maté, eigandi og víngerðarmaður Marta Maté, í samstarfi við Vínskólann standa fyrir frábæru Masterclass. Hann mun veita okkur einstakt tækifæri til að fá innsýn í eitt af ungu víngerðum í Ribera del Duero sem hafa vakið gríðarlega athygli, ásamt því að segja okkur frá héraðinu sjálfu og leiða okkur í gegnum smökkun á vínunum sínum.
César Maté er af mörgum talinn einn af mest spennandi víngerðarmönnum Spánar þessar stundina og er hann þeirrar skoðunnar að til þess að gera vín með sál þurfi lágmarks inngrip í víngerðinni sem og sérstaka natni við vínviðinn.
Hér er því um að ræða einstakt tækifæri til að eiga kvöldstund með honum og fræðast um vínin hans á sama tíma og þau eru smökkuð.
Vínin sem verða smökkuð eru:
Primordium 2012
Vinas del Lago 2019
Marta Maté 2021
Marta Maté 2018
El Holgazan 2022
Marta maté Radical 2022
Byrjar 18:00
Staðsetning Port 9 - Veghúsastíg 9
Verð - 4.000 kr
Share
